|
|
26.08.2007 23:22:20 / Gummi_O
Ég setti slatta af nýjum myndum inn hér til vinstri undir myndir 2007 Later Gummi_O
»
18.05.2007 03:23:53 / Gummi_O
Ég henti inn nokkrum nýjum myndum hér til vinstri.
Það var haldin útskriftar veisla fyrir krakkana í bekknum hennar
júlíu á Chucky Cheese á Fimmtudags kvöldið þar sem þau eru að
klára leikskólann og byrja svo í skóla í haust, Júlía fer í Broken
Arrow elementary school. Ég setti nokkrar myndir af
því.
Svo eru nokkrar myndir af stelpunum síðustu 3-4 mánuði.
Later
Gummi_O
»
01.02.2007 04:08:58 / Gummi_O
Það er búið að vera snjór og vitleysa hér í
Oklahoma síðustu vikur svo ég get ekki beðið eftir að komast
héðan í burtu í sólina og strandlífið í skotlandi og ef ég
verð eitthvað óheppinn með veður þar að þá skiptir það svosem
engu máli því ég keypti mér helgarferð til íslands á meðan á
dvölinni stendur og veit að veðrið á eftir að leika við mig
þar á þessum árstíma.
Annars legg ég af stað á laugardaginn frá Tulsa um hádegið og
flýg til dallas þar sem við stoppum í 2 tíma og þaðan tekur við 10
tíma flug til Frankfurt í þýskalandi þar sem við stoppum í nokkra
tíma.
Þá hoppum við upp í aðra vél sem tekur okkur til London þar sem
við stoppum í nokkra tíma í viðbót svo loksins fljúgum við til
Glasgow, þar sem einhver með stórt skilti sem segir Rolls Royce
býður eftir okkur á sínum fjalla bíl og ekur með okkur á hótelið
okkar sem er í East kilbride rétt fyrir utan Glaskow,
Þegar þangað er komið ætla ég að fá mér einn kaldann bjór
hvort sem mig langar í hann eða ekki og ástæðan fyrir því er að þá
hef ég drukkið bjór frá fjórum löndum og borgað fyrir þá með fjórum
gjaldeyrum ( dollurum í USA, Evrum í Þýskalandi, Bresku pundi í
London og Skosku Pundi í skotlandi) á rúmum 22 klukkutímum sem
einfaldlega gerir mig að betri manneskju en ykkur!!!!!
Ég kem til Íslands 16 febrúar og fer aftur til skotlands 18
febrúar.
Ég fékk ferðina á algjöru útsölu verði miða við það að þetta er
nátúrulega háanna tími í ferðamensku á Íslandi 40000 krónur,
Típískt Flugleiða okur!!!
Ég get reddað mér ferð frá Glasgow til Spánar (þar sem er í
alvöru sól og strandlíf) með hóteli fyrir minna en það sömu helgi
og eitt helginni í að búa til sandkastala á ströndinni
En ákvað að vegna þess að ég tala ekki spænsku og að þá væri
skynsamlegra að fara bara til Íslands og eftir því hvernig ástandi
maður er í búa til nokkra snjó engla á flyðrugrandanum.
En það er allt í lagi því ég fékk ávísun upp á tæpann hundrað
þúsund kall frá fyrirtækinu til að eyða á þessum 3 vikum sem ég er
í burtu plús að vera á fullum launum svo þessi miði kostaði mig í
raun ekkert!!
Við fáum fríann morgunmat og hádegismat og þurfum bara að redda
okkur kvöldmat og bjór!! svo 60 þúsund kallinn sem eftir er af
eyðslupeningnum frá fyrirtækinu ætti að vera nógur peningur fyrir 3
vikur í skotlandi.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég ferðast fyrir fyrirtækið og það
er hugsað ágætlega um mann!! í fyrsta lagi eigum við að fljúga
Business class ekki öruggt ennþá en ef það er pláss fáum við
business class, við fáum 65 dollara á hvern dag sem við erum í
burtu ofaná venjulegu launin okkar!!!
Svo var okkur sagt Keep all the receipts því við fáum flest allt
endurgreytt af fyrirtækinu þegar við komum til baka eins allar
lestarferðir og leigubíla sem við förum etc. svo er ég með gsm síma
frá fyrirtækinu sem ég get notað eins og ég vil. Sama símanúmer og
ég er búinn að vera með en til að hringja í mig verður að hringja í
gegnum bandaríkin 001-918-346-3530.
Ég sé ykkur á klakanum eftir 2 vikur
Later
Gummi
»
13.01.2007 05:55:13 / Gummi_O
Afhverju gerir fólk alltaf áramótaheit sem
það er ekki nokkur leið að standa við eins og að hætta að
reykja?? Vonlaust!!! ég hef hætt að reykja 50000000000000000
sinnum og enda alltaf á því að kveikja mér í síkarettu 2
dögum seinna ( því ég get ekki reykt þegar ég er þunnur
daginn eftir að ég set áramótaheitin fullur ) Svo þetta
áramótaheit er úr sögunni
Að ætla að fara í ræktina og losa sig við fullt af kílóum???
Vonlaust!!!! Ég er búinn að prófa það 5000000000000000000 sinnum og
það fyrsta sem ég geri eftir að það rennur af mér eftir partýið sem
ég var í og sagðist ætla að byrja á megrunar kúr og í ræktinni, er
að fara og fá mér góðann hamborgara með frönskum því það er ekkert
betra en það eftir gott fyllerý!!! og fyrir utan það hver er svo
vitlaus að ætla að skipta út hamborgurum, frönskum og sitja á
sófanum og horfa á sjónvarpið, í sallat og fara út að hlaupa??? það
er til annað orð yfir svoleiðis fólk og ég held að það sé
masókisti, svo þetta áramótaheit er úr sögunni
Hætta að drekka???? Fyndna við það er að maður er alveg viss um
að maður veit allt betur og er algerlega ódrepandi .þegar maður er
kominn alminnilega í það!!!! Ég veit ekki afhverju maður mundi gefa
þannig superpower eftir???? þegar maður þarf bara að drekka nokkra
bjóra til að vera Superman!!!, svo er ekki til meira óþolandi fólk
heldur en fólk sem er á superman stiginu og ekki nokkur leið að
þola það nema vera á svipuðu stigi, svo þetta áramótaheit er úr
sögunni
Eyða meiri tíma með fjölskyldunni??? Það er gaman að vera með
fjölskildunni EN maður eyðir meiri tíma með fjölskiyldunni en í að
gera nokkuð annað!!!! og stundum þarf maður smá frí frá öllum
látunum í krökkunum!!! og ekki er konan betri því ef maður gerir
ekki það sem hún vill akkurat þegar hún vill að þá fær maður að
vita ástæðuna afhverju honeymoonið er búið hjá okkur!!!og það er
afþví að "ég lykta alltaf eins og síkarettur", "er feitur og geri
ekkert annað sitja á sófanum og glápa á sjonvarpið", "er
fyllibytta" og er aldrei heima.
Ég veit að það eina sem allir segja að geti kálað Superman er
kryptonite en ég get fullvissað ykkur um það að konan mín gæti
gengið frá honum fljótar en kryptonite á góðum degi.
Svo ég hef áhveðið að
1. Hætta að reykja á árinu 2007
2. Fara í ræktina og losa mig við nokkur kíló árið 2007
3. Reyna að skilja að ég er ekki Superman í alvörunni þó ég sé
búinn að drekka nokkra bjóra,á árinu 2007
4. Vinna aðeins minna, á árinu 2007 og eyða meiri tíma með
fjölskyldunni
Til að sambandið virki þarf maður að vinna í því að konan sé
ánægð.
Later
Gummi_O
PS: Það er mikilvægt að allir skilji að þó ég sé hlekkjaður við
eldavélina 99% af tímanum sem ég er heima að þá er ég karlmaðurinn
á þessu heimili sem þýðir að ég geri það sem ég vill!!! ef konan
leyfir og fæ að fara á klósettið ef ég bið fallega.
»
07.01.2007 03:15:26 / Gummi_O
Ah am gonnae scottlain in febuary an' Ah hae decided tae write thes
blog in scottish.
I'll be thaur fur thee weeks an' am thinkin' abit komin' haem tae
icelain a body ay th' weekends, Ah dunnae kinn whit date yit but it
will probably be th' second weekend aam thaur.
Ah dunnae kinn abit ye bu Ah hink th' scottish leid is bonnie funay
an' dornt kin hoo anybody understands it.
I've herd th' troaps ower thaur ur bonnie guid troaps an' try tae
slaw doon when they gab sae we can kin them better.
But Ah dornt hae onie worries coz as ye can see Ah am fluent in
scottish an' will help th' troaps 'at ur wi' me ower thaur sae they
dornt miss it oan anythin' while we ur in class.
We will be in a toon called eest kilbride which is abit 30 minutes
ootwith ay Glasgee. we will fly frae dallas tae frankfurt germany
an' frae thaur tae london an' finally frae london tae Glasgee which
is abit an 18 hoor trip aw together
I'll hae time tae gie blooter'd, sleep it ay an' gie blooter'd
again afair we gie thaur an' Ah dornt havetae worrie abit mah
guidwife yellin' at me while Ah dae it.
Weel thes takes way tae lang tae write a blog in tae langueges sae
i'll caa it guid fur tonecht, but i'll blog some moair afair Ah lae
an' lit ye ken if aam comin' tae icelain ur nae.
If Ah come it will probably be friday th' 16th ay febuary. see ye
'en.
Fyrir ykkur sem eiga í erfiðleikum með að skylja skoskuna mina
ákvað ég að setja þetta á íslensku líka þó finnst mér allveg
sjálfsagt að þó að það sé bara ég sem er að fara til skotland að
þið lærið hana líka.
Ég era ð fara til scotlands í febrúar svo ég áhvað að skrifa
bloggið á skosku.
Ég verð þar í 3 vikur og era ð spá í að koma heim til islands eina
helgina, ég veit ekki hvenar en ég era ð spá í aðra helgina sem ég
er þar
Ég vet ekki með ykkur en mér finnst skoska tungumáli frekar fyndið
og skil ekki hvernig nokkur maður skilur það???
Ég er búinn að heira að kallarnir þarna sem við erum að fara eru
mjög fínir kallar og reyna að hægja aðeins á sér þegar þeir eru að
tala við okkur svo við eigum auðveldara með að skilja
þá.
En ég hef svosem engar áhyggjur því eins og þið sjáið að þá er ég
altalandi á skosku og mun hjálpa cönunum sem verða þarna með mér
svo þeir missi ekki af neinu á meðan við erum í
tíma.
Við verðum í bæ sem heitir East kilbride og er um 30 mínútur frá
Glasgow.
Við fljúgum frá Dallas til Frankfurt í þýskalandi og þaðan til
London og svo loksins
til Glasgow sem er í kringum 18 tíma ferðalag.
Þannig að ég hef tíma til að drekka mig fullann sofa það úr mér og
drekka mig fullann aftur áður en við komum þangað, og ég þarf ekki
að hafa áhyggjur af því að konan sé að væla yfir
því.
Jæja það tekur allt of langann tíma að blogga á 2 tungumálum svo ég
ætla að kalla þetta gott í kvöld, en ég mun blogga aftur áður en ég
fer og læt ykkur vita ef ég kem til Íslands eða
ekki.
Ef ég kem heim að þá kem ég þann 16 febrúar. Sé ykkur
þá!!
Later
Gummi_O
»
28.12.2006 06:02:52 / Gummi_O
Þá eru blessuð jólin búin!!
Þessi jól voru álíka léleg og fyrri jólin hérna í Ameríku!!! Það
vantar eitthvað til að jólin virki fyrir mig hérna úti.
Ég veit ekki hvað það er en ég veit að þegar jólaskrautið er
komið upp í búðunum í Júní að þá er það ekkert jólalegt lengur í
Desember!!!
Kalkúnn í matinn??? ekki beint jólalegt þegar maður getur farið
og keypt sér kalkúna samloku á hverju horni hérna úti allt árið um
kring, svo átum við kalkún fyrir mánuði síðan á Thanksgiving og svo
átum við afganga í 2 vikur eftir það!!!
Annars var nú jólamaturinn heima hjá Michael ekki slæmur,
samloku bakki með skinku og osti frá Albertson verslunar
keðjunni!!! sem hann keypti örugglega viku áður en við komum til
Dallas því brauðið á samlokunum sem voru yrst á bakkanum var grjót
hart, sjálfsagt verið á útsölu þá vikuna.
Svo má ekki gleyma jóla drykkjunum sem voru í boði Gatorade með
lemon bragði, cranberry-apple juice og orange juice, ummm þvílíkt
lostæti ég get ekki beðið eftir næsta aðfangadegi því hann sagðist
ekkert ætla að spara á næsta ári og hafa pappaglös svo við þurfum
ekki öll að skiptast á að drekka af stút.
Hei það var allavegana ekki kalkúnn!!
Svo var haldið áleiðis til Greenville Texas þar sem Amma hennar
Monicu á heima og þar var sama rútínan eins og venjulega, hitta
fólkið, éta kalkún og drekka jóla drykkinn ICE TEA oojjbara ice tea
er viðbjóður og er líka drykkur sem allir drekka með matnum allt
árið í kring, ekki beint jólalegt!!!! Ég drakk VATN með matnum

Svo voru opnaðir pakkar sem var orðið eins og daglegur viðburður
þar sem við vorum búin að opna pakka í 3 daga í röð þar sem við
opnuðum pakkana okkar hérna heima áður en við fórum til Texas svo
við þurftum ekki að taka alla pakkana okkar þangað niður eftir.
Buy the way við pöntuðum okkur pizzu áður en við opnuðum okkar
pakka hérna heima!!! og ég verð að segja að það var var örugglega
besti jólamaturinn þessi jólin því ég hafði ekki pantað Pizzu í
örugglega 3 mánuði áður en ég pantaði þessa en var búinn að éta
kalkún 10 sinnum og samloku með skinku og osti 20 sinnum á sömu 3
mánuðum.
Eins og ég sagði í blogginu mínu eftir síðustu jól að þá jafnast
ekkert á við jólin hjá Mömmu!!!
Mamma að farast úr stressi að rífast og skammast í öllum fyrir
að hjálpa ekki til!!! þó að þegar einhver reynir að hjálpa að þá
eru þeir bara fyrir og hún rífst og skammast yfir því að allir eru
fyrir henni í eldhúsinu.
Ahhh gömlu góðu jólin.
Ég sakna þeirra, ég vildi að mamma mundi bara hringja í mig á
aðfangadag á hverju ári og segja mér að hunskast út úr eldhúsinu
því ég væri bara fyrir og drífa mig í sturtu því allir væru á
leiðinni.
Hér eru jól eins o þau eiga að vera
Aðfangadagur:
vakna í kring um 10:00AM og fara upp í kirkjugarð setja blóm á
leiðin hjá pabba og öðrum ættingjum.
11:55am hlaupa út í búð því mamma gleymdi sósulitnum í sósuna og
er að fara yfirum af stressi því búðin lokar klukkan 12:00PM
13:00pm klára að pakka inn jólapökkunum
15:00pm láta mömmu hafa jólafötin til að straua því lets face it
I'm a guy og það er einn hluti af tækninni sem ég hef ekki lagt
mikið af mér að læra.
16:30pm nú er liktin af hamborgarahryggnum farin að lykta yfir
alla íbúð og mamma á fullu að gera allt klárt áður en Guðny og
Klemens koma með fjölskildurnar þeirra í matinn kl 18:00pm og ég
likta eins og nýkominn út úr fjósi ef marka má mömmu þar sem ég er
ekki búinn að fara í sturtu.( ég veit ég er þrítugur en ef ég mundi
flytja aftur heim mundi ég örugglega bara búa hjá mömmu )
18:00pm Guðny og Klemens og þeirra fjölskyldur komnar í hús og
maturinn tilbúinn, það er eins og mamma hafi tekið róandi lyf því
allt gekk upp að lokum ( eins og árið áður og árið á undan því og
öll árin sem ég man eftir á undan því )
20:00pm Loksins eftir að það er búið að vaska upp hvern einasta
disk og pússa hverja einustu skeið í húsinu ( meira að segja
skeiðarnar úti í geymslu sem hafa ekki verið notaðar í 20 ár ) að
þá fengum við að opna pakkana, og allir fengu fullt af pökkum nema
Pabbi hann fékk alltaf bara eina bók og einstakasinnum sokka líka
HeHe.
Svo var bara setið á meltunni þangað til á jóladag að það voru
étnar smákökur og horft á 5 bíomyndir sem við þurftum að leigja með
viku fyrirvara afþví videoleigurnar voru alltaf lokaðar í kringum
jólin.
Þið getið kallað mig gamaldags en svona eiga jól að vera.
Og svo er hérna spurning að lokum, því ég er að upplifa þetta í
fyrsta skipti!!!
Hvenar varð það að reglu að þegar maður verður pabbi að maður
fái nærbuxur í jólagjöf???? Þetta er kjaftæði!!!
Konur ætlast alltaf til að fá einhverja skartgripi eða eitthvað
álíka flott svo reynir maður að kaupa eitthvað flott fyrir börnin
og í staðin fær maður NÆRBUXUR í jólagjöf WTF.
Ég keypti Nýja digital myndavél fyrir konuna sem kostaði mig
næstum 900 dollara og ég keypti dót fyrir stelpurnar fyrir hátt í
400 dollara og ég fékk skó frá konunni og Nærbuxur frá börnunum,
það þarf einhver að breyta þessari reglu!!! hvað varð um jafnrétti
kynjanna???
En kanski er þetta að breytast aðeins okkur körlunum í vil því
ég man þegar ég var gutti þá fékk pabbi bara eina gjöf og það var
bók, ( ég fékk allavegana tvær gjafir Skó og Nærbuxur nananananana
) ég hef oft hlegið og grínast með félögunum um þetta umræðu efni
að pabbar fái alltaf nærbuxur og sokka í jólagjöf, en það er bara
ekki svo fyndið lengur!!
Svo ég ætla hér með að byrja að safna undirskriftum í comments
hérna fyrir neðan sem ég ætla svo að senda öllum eiginkonum og
barnsmæðrum í heiminum sem gefa gjafir fyrir hönd barnanna sinna og
krefjast þess að þær byrji að gefa okkur karlmannlegri gjafir en
Nærbuxur, svo við getum haldið áfram að gera grín með okkar ókvæntu
og barnlausu vinum.
Það eina sem þú þarft að gera er að ef þér fynnst að þú hafir
fengið óréttláta gjöf í jólagjöf að þá skrifar þú undir og
segir hvað þú fékkst og þú getur átt von á 50 dollurum frá
Microsoft.
Later
Gummi_O
PS: Bill Gates lofaði að Microsoft mundi gefa 50 dollara fyrir
hverja undirskrift til að pabbar geti skipt nærbuxunum upp í
verkfærakassa. Það eina sem þú þarft að gera er að ef þér fynnst að
þú hafir fengið óréttláta gjöf í jólagjöf að þá skrifar þú
undir og segir hvað þú fékkst og og þú getur átt von á 50
dollurum frá Microsoft.
»
07.12.2006 03:13:35 / Gummi_O
Ég er búinn að eyða 3 tímum í að reyna að setja mynd hérna
inn.
og loksins lærði ég það.
Hérna er mynd af nýja besta vini mínum sem ég fann í vínbúðinni
um daginn!! Ég veit ekki hvað hann kostar heima en hann kostar tæpa
20 dollara hér í kring um 1400 Íslenskar krónur fyrir 750ml flösku.
ekki slæmt fyrir eitthvað sem er flutt inn frá Íslandi og það kæmi
mér ekkert á óvart að það sé dýrara heima á Íslandi en
hér.

Annars er ég bara að prófa að setja inn myndir.
Later
Gummi_O
»
07.12.2006 03:02:32 / Gummi_O
»
13.08.2006 01:10:13 / Gummi_O
Það eru komnar nokkrar myndir úr afmælinu hennar Júlíu frá því á
laugardaginn 12 Ágúst.
við leigðum risa stórann loft kastala fyrir krakkana til að
hoppa og leika sér í.
Síðustu myndirnar eru teknar innan við 5 mínútum eftir að við
komum inn eftir að vera úti að leika og þið getið séð hversu
þreittar stelpurnar voru.
dagsettningin á myndunum er vitlaus þær eru teknar á myndavélina
hennar Yvonne og hún kann ekki að laga dagsetninguna á vélinni
sinni.
ég set fleyri myndir inn fljótlega.
Later
Gummi_O
»
24.06.2006 06:17:04 / Gummi_O
Í dag hefði Pabbi orðið 66ára gamall og ég
ætla bara að óska honum til hamingju með daginn.
Það eru rúm 9 ár síðan hann dó og ég fann minningar greinarnar
um hann á netinu sem ég man ekki eftir að hafa lesið áður svo ég
áhvað að setja þær hérna inn fyrir ykkur hin til að minnast hans á
afmælisdaginn hans.
Óli Már Guðmundsson fæddist 24. júní 1940. Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru
Guðmundur Loftur Jónsson verkstjóri hjá Ríkisskipum í Reykjavík,
fæddur 2. apríl 1914 í Reykjavík, dáinn 17. nóvember 1966 og
Karólína G. Guðjónsdóttir, fædd 31. mars 1913 í
Voðmúlastaðahjáleigu í Austur-Landeyjahreppi í Rangárvallasýslu,
dáin 21. mars 1948. Óli Már var einkabarn foreldra sinna. Óli Már
missti móður sína 8 ára gamall og ólst eftir það upp hjá föður
sínum. Óli Már var kvæntur Kolbrúnu Dexter en þau slitu samvistum.
Óli Már kvæntist Hrefnu Guðmundsdóttur 2. maí 1970. Foreldrar
Hrefnu voru Aðalheiður Klemensdóttir húsfreyja í Reykjavík, fædd
21. október 1910 í Reykjavík, dáin 26. október 1995, og Guðmundur
Kristján Kristjánsson, vélstjóri í Reykjavík, fæddur 19. júlí 1904
í Reykjavík, dáinn 27. janúar 1958. Börn Óla Más og Hrefnu eru 1)
Klemens Arnarson. Maki hans er Eva Rós Jóhannsdóttir. Þau eiga
Ástrósu Önnu. 2) Guðný Linda Óladóttir. Maki hennar er Markús
Hallgrímsson. 3) Guðmundur Loftur Ólason. Óli Már var rafveituvirki
að mennt. Ungur að árum hóf hann störf hjá föður sínum hjá
Ríkisskipum. Síðar vann hann við vörubifreiðaakstur m.a. við
byggingu Búrfellsvirkjunar. Þá réðst hann til starfa hjá frönskum
verktaka sem byggði háspennulínu frá Búrfellsstöð að Geithálsi.
Vann um nokkurra mánaða skeið að línubyggingum í Frakklandi. Vann í
allmörg ár hjá verktakafyrirtækjunum Hafi hf. og Jóni Aðils sf. að
byggingu á öllum megin flutningslínum fyrir Landsvirkjun. Réðst
síðan í ársbyrjun 1980 til starfa hjá Landsvirkjun á stofnlínudeild
rekstrarsviðs og vann þar til dauðadags. Útför Óla Más
Guðmundssonar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Óli Már Guðmundsson
Það kom eins og reiðarslag yfir mig þegar konan mín hringdi í
mig í hádeginu 21. mars og sagði mér andlát svila míns. Hann hafði
kennt veikinda nokkrum dögum áður og farið í rannsókn, ekkert hafði
komið út úr þeirri rannsókn sem benti til þess að nein hætta væri á
ferðum, en maðurinn með ljáinn spyr ekki um stað og stund.
Á svona stundum leitar hugurinn til baka og fer ekki hjá því að
margar minningar skjóta upp kollinum. Ég minnist þess er ég
kynntist Óla fyrst hvað mér þótti hann léttur í spori, alltaf á
ferðinni út og suður að redda hinu og þessu fyrir ættingja og
vini.
Mér var sagt af kunningja mínum gömlum KR-ingi að Óli Már hefði
þótt eitthvert besta efni í knattspyrnumann á sínum yngri árum. Mér
er það í minni þegar við hjónin bjuggum á Skagaströnd og dóttir
okkar var fermd, að þeim leiddist innisetan svilum mínum Óla og
Geoff Brabin og fóru út á fótboltavöllinn með unga frændur og vini
og sýndu þar ungum og upprennandi knattspyrnuhetjum hvernig átti að
meðhöndla boltann. Fljótlega söfnuðust að ungir
knattspyrnuáhugamenn og urðu augun eins og undirskálar þegar þessir
snillingar léku þarna listir sínar.
Óli vann árum saman sem línumaður hjá Landsvirkjun og kunni vel við
útivinnu uppá öræfum landsins. Þar kom sér vel að hann var alla tíð
grannur og harður af sér, enda ekki heiglum hent að stunda
viðgerðir uppi á öræfum um hávetur.
Óli Már hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og fylgdi
sannfæringu sinni eftir, það fór ekki framhjá neinum hvaða skoðun
hann hafði á tilteknum málum þegar um var rætt, alltaf var þó stutt
í húmorinn. Þau Óli og Hrefna komu oft austur í sumarbústaðinn
okkar litla á Rangárvöllum og brást það ekki að Óli rak höfuðið upp
undir þakskeggið og sendi mér þá "snotrar" athugasemdir um stærðina
á bústaðnum. Ferðalög voru Óla hugstæð og gleymi ég seint þegar við
Alla heimsóttum þau hjón síðastliðið sumar norður að Blönduvirkjun
þar sem þau voru í sumarfríi. Óli dreif í því að fá leyfi til að
sýna okkur virkjunina og var það ógleymanlegt. Óli var búinn að
vinna við byggingu Blönduvirkjunar og var öllumm hnútum kunnugur og
höfðum við miklu meira út úr þessari skoðunarferð en ef við hefðum
haft venjulegan leiðsögumann. Þá var bridsíþróttin Óla mikið
áhugamál. Hann var á árum áður í flokki snjöllustu bridsmanna
landsins og sýna hinir fjölmörgu verðlaunagripir hans að þar stóð
hann í fremstu röð.
Nú þegar vegir okkar skiljast um sinn, er mér efst í huga þakklæti
til svila míns fyrir ótalmargar ánægjustundir og vináttu í gegnum
árin.
Ég sendi Hrefnu mágkonu minni og fjölskyldu hennar mínar dýpstu
samúðarkveðjur og bið góðan guð að styrkja þau í sorg sinni.
Minningin um góðan dreng lifir.
Jón Helgason.
Óli Már Guðmundsson
Okkur vinnufélögum Óla Más var illa brugðið þegar hann á dögunum
fékk aðkenningu að því sem aðeins viku síðar átti eftir að leggja
hann að velli. Fráfall hans var því skyndilegt og óvænt og
ótímabært.
Hann vann við stofnlínukerfi Landsvirkjunar þar sem oft og tíðum
reynir á bæði líkamlegt og andlegt úthald. Var þar engan bilbug á
honum að finna. Hann gekk rösklega að störfum sínum. Því kom
fregnin um að hann væri allur öllum þeim sem til þekktu á óvart.
Ástæða var til að binda vonir við að hann næði sér á nýjan
leik.
Með Óla Má er genginn sérstæður einstaklingur sem í mörgu fór sínar
eigin leiðir og fór oft og tíðum hratt fram í siglingu sinni um
lífið. Það gustaði oft og gaf á báðar hliðar enda persónuleiki hans
allur með þeim hætti. Hann var hreinn í öllum mannlegum samskiptum.
Tjáði sig þannig að vel skildist og var afar fjarri því að tala á
bak nokkrum manni. Hann var einstakur ákafamaður um allt sem hann
tók sér fyrir hendur hvort sem var í starfi eða leik. Hann náði og
einkar góðum tökum á viðfangsefnum sínum. Hin síðari misseri vann
hann töluvert að tölvuskráningu og sparaði hvorki tíma né fyrirhöfn
né heldur frítíma sinn til að ná tökum á tölvumálum. Hann gekk
glaðbeittur að störfum sínum. Þegar kallið kom hafði hann verið
öryggistrúnaðarmaður félaga sinna á vinnustaðnum um nokkurt skeið.
Vann hann það viðkvæma og vandasama verk með sama áhuga og allt
annað sem hann tók sér fyrir hendur.
Landsvirkjun er stór og víðfeðmur vinnustaður. Svo er þó skipulagi
og starfi öllu fyrir að þakka að einstaklingar geta fundið sér í
tímans rás þann farveg í starfi sem best hentar bæði fyrirtækinu
sem og starfsmönnum. Það gilti vel um Óla Má að hann var sáttur í
starfi og nýttust kraftar hans vel í þágu fyrirtækisins.
Ekki verður skilist svo við Óla Má að ekki sé minnst á þá færni sem
hann náði í briddsspili. Var hann raunar á árum áður í röð allra
fremstu briddsspilara landsins. Á vinnustað sínum bar hann því bæði
höfuð og herðar yfir annars ágæta spilara þar og hafði mikla ánægju
af að taka í spil með vinnufélögunum þó alvara þeirra spila væri
ekki með sama hætti og áður var þegar hann reyndi með sér í hópi
þeirra allra bestu. Nú þegar dagur hefur náð yfirhönd yfir nóttu og
birta yfir myrkri kveður félagi okkar. Það var okkur mikið
ánægjuefni að sjá hve mjög birti og hin síðari ár í hans eigin
lífi. Hann var augljóslega afar sáttur við sjálfan sig, starf sitt
og síðast en ekki síst við allt sitt einkalíf. Þar var í öllu bjart
yfir.
Atvik haga því svo til að við sem þetta ritum fáum ekki fylgt
félaga okkar síðasta spölinn. Því kveðjum við hann hér og nú. Við
kveðjum ágætan samstarfsmann og góðan vin og biðjum honum
blessunar. Við sendum Hrefnu og fjölskyldunni allri okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Jón Aðils,
Þorgeir J. Andrésson.
Later
Gummi_O
»
20.04.2006 23:49:39 / Gummi_O
það er kannski kominn tími til að skella
eins og einu bloggi hérna inn til tilbreytingar.
Við skruppum til Springfield Missouri um páskana bara svona til
að komast út úr bænum, fórum á einhverja náttúru safn sem er
innandyra og er með fiska og apa og svoleiðis dóderí svo fórum við
í dýragarðinn sem var hund gamall og að mínumati ekkert sérstakur
en það sem ég komst að í þessari ferð er að það er einfaldlega
ekkert að gera í Springfield Missouri og að Hómer Simpson býr ekki
og hefur aldrei búið þarna?? en ég er búinn að horfa á nógu og
marga þætti um simpsons að ég veit að hann er þarna
einhverstaðar.
Við stoppuðum á skyndibita stað á leiðinni til Missouri og það
var feitur kall sem sat nokkrum borðum frá okkur og Júlía sagði
look daddy that man has a baby in his tummy og ég sagði henni að
það væri ekki rétt og skipti um umræðuefni og hélt að hún væri búin
að gleyma þessu þangað til að kallinn stóð upp og labbaði framhjá
okkur að hún segir see daddy look I told you he has a baby in his
belly!! en kallinn bara brosti og hélt áfram að labba.
Við erum farin að hlakka til að koma heim akkurat mánuður í það
við erum komin með passa fyrir Apríl svo það ætti allt að vera
tilbúið fyrir ferðina.
ég hef ekkert meira að segja annað en Gleðilegt sumar.
Later Gummi_O
ps: Ef einhvern vantar eitthvað héðan að utan then speak up now
or for ever hold your peace.
»
03.04.2006 16:47:04 / Gummi_O
Þá er búið að kaupa miðana til
íslands í sumar við leggjum af stað á laugardaginn 20 mai og
lendum í keflavík sunnudaginn 21 mai kl: 6:25am og förum aftur 4
Júní kl: 16:40 pm.
Eina vandamálið er að við þurfum að
bíða í 8 klukkutíma á flugvellinum í baltimore sem á eftir að vera
ferlegt nema við getum fundið eitthvað að gera fyrir
stelpurnar.
Svo þurfum við að gista eina nótt í
baltimore á leiðinni heim því við lendum í baltimore kl 18:50 og
síðasta flugið frá baltimore fer kl 18:55 en það verður bara
fínt.
Annars er ekkert meira að frétta
héðan í bili.
Gummi_O
»
22.02.2006 04:15:57 / Gummi_O
af:22
Februarie an:22 de
frebero
ar:22 فبراير ast:22 de
febreru
be:22 лютага
bg:22 февруари ca:22 de
febrer co:22 di
frivaghju cs:22. únor
csb:22
gromicznika cy:22 Chwefror
da:22. februar
de:22. Februar
el:22 Φεβρουαρίου eo:22-a
de februaro es:22 de
febrero et:22.
veebruar fi:22.
helmikuuta fo:22. februar
fr:22
février fy:22
febrewaris ga:22 Feabhra
gl:22 de
febreiro
he:22 בפברואר hr:22.
veljače hu:Február
22 ia:22 de
februario id:22 Februari
io:22 di
februaro
is:22. febrúar it:22 febbraio
ja:2月22日
ko:2월
22일
ku:22'ê reşemiyê lb:22. Februar
lt:Vasario 22
mk:22 февруари nl:22 februari
nn:22. februar
no:22. februar
oc:22 de
febrièr pl:22 lutego
pt:22 de
Fevereiro ro:22
februarie
ru:22 февраля scn:22 di
frivaru se:Guovvamánu
22. sco:22 Februar
simple:February
22 sk:22.
február sl:22. februar
sq:22 Shkurt
sr:22. фебруар sv:22 februari
th:22 กุมภาพันธ์ ebrero 22" href=
"/psypsych?title=Tl ebrero_22&action=edit">tl ebrero 22
tr:22 Şubat
tt:22.
Febräl
uk:22 лютого wa:22 d'
fevrî zh:2月22日
Hér eru nokkrir fróðlegir atburðir sem hafa gerst á
þessun merka degi í tímanna rás
Bendi sérstaklega á ártalið 1976 undir
births
Events
- 1290s BC -
The coronation of Ramses II, on whose face the sun's rays
fall each year in Abu Simbel temple.
- 1281 - Martin IV
becomes Pope.
- 1288 - Nicholas
IV becomes Pope.
- 1495 - King
Charles VIII of France
enters Naples to
claim the city's throne.
- 1632 - Galileo's
Dialogue
Concerning the Two Chief World Systems is
published.
- 1744 - The
Battle of Toulon
begins.
- 1819 - By the
Adams-Onís Treaty,
Spain sells
Florida to the United States
for five million U.S. dollars.
- 1847 - Mexican-American War: The
Battle of Buena Vista - 5,000
American troops drive off 15,000
Mexican.
- 1855 - The
Pennsylvania State
University is founded.
- 1856 - The
Republican Party
opens its first national meeting in Pittsburgh,
Pennsylvania.
- 1865 - Tennessee adopts a new
constitution that abolishes
slavery.
- 1876 - Johns Hopkins University
is founded in Baltimore, Maryland.
- 1879 - In
Utica, New York, Frank
Woolworth opens the first of many of 5 and 10-cent Woolworth
stores.
- 1889 - President
Grover Cleveland signs a bill
admitting North Dakota, South Dakota,
Montana and
Washington
as U.S.
states.
- 1904 - UK recognises the South
Orkney Islands as part of Argentina, in 1908 claims them again.
- 1915 - Germany institutes
unrestricted
submarine warfare.
- 1920 - In
Emeryville, California,
the first dog race track to
employ an imitation rabbit opens.
- 1923 - The
United
States begins the first transcontinental air mail route.
- 1923 - Barcelona (Catalonia): Albert Einstein visits the
city, invited by the scientist Esteban Terradas i
Illa, as part of the monografics course of High Studies and
Exchange organized by the Mancomunitat de
Catalunya and conducted by Rafael de
Campalans.
- 1924 - Calvin
Coolidge becomes the first President of the United
States to deliver a radio broadcast from the White House.
- 1942 - World War II:
President
Franklin D. Roosevelt
orders General Douglas MacArthur out of the
Philippines as American defense
collapses.
- 1943 - Members of
White Rose
are executed in Nazi
Germany.
- 1948 - Start of the
Czechoslovak Revolution.
- 1949 - Grady the Cow, a
1,200-pound cow gets stuck inside a silo on a farm in Yukon,
Oklahoma and garners national media attention.
- 1956 - Elvis Presley
enters the music charts for the first time, with "Heartbreak
Hotel".
- 1958 - Egypt and Syria join to form the United Arab Republic.
- 1959 - Lee Petty wins the first
Daytona
500.
- 1969 - Barbara Jo
Rubin wins a United States thoroughbred
horse race
making history as the first woman to do so.
- 1973 - Cold War: Following
President Richard Nixon's visit to China, the United States and the
People's Republic of
China agree to establish liaison offices.
- 1979 - Independence
of Saint
Lucia from the United Kingdom.
- 1980 - The
United
States ice
hockey team defeats the Soviet Union team at the 1980 Winter Olympic
Games in an upset dubbed the "Miracle on Ice".
- 1994 - Aldrich Ames and
his wife are charged by the United States
Department of Justice with spying for the Soviet Union.
- 1997 - In
Roslin, Scotland, scientists
announce that an adult sheep named Dolly had been successfully
cloned.
- 2002 - A MH-47E Chinook
helicopter
crashes into the ocean near the Philippines, killing all 10
aboard.
- 2005 - Brian
"Head" Welch Leaves the
Band Korn
Births
- 1040 - Rashi, French rabbi and
commentator (d. 1105)
- 1403 - King
Charles VII of France (d.
1461)
- 1440 - King
Ladislaus
Posthumus of Bohemia and Hungary (d. 1457)
- 1500 - Cardinal Rodolfo Pio da
Carpi, Italian humanist (d. 1564)
- 1612 - George Digby, 2nd
Earl of Bristol, English statesman (d. 1677)
- 1705 - Peter Artedi,
Swedish naturalist (d. 1735)
- 1714 - Louis-Georges de
Bréquigny, French historian (d. 1795)
- 1732 (N.S.) -
George Washington, first
President of the
United States (d. 1799)
- 1778 - Rembrandt
Peale, American artist (d. 1860)
- 1788 - Arthur
Schopenhauer, German philosopher (d. 1860)
- 1796 - Alexis
Bachelot, French missionary (d. 1838)
- 1796 - Lambert Adolphe
Jacques Quetelet, Belgian mathematician (d. 1874)
- 1817 - Carl Wilhelm Borchardt,
German mathematician (d. 1880)
- 1819 - James
Russell Lowell, American poet and essayist (d. 1891)
- 1839 - Francis Pharcellus
Church, American editor and publisher (d. 1906)
- 1840 - August Bebel,
German politician (d. 1913)
- 1849 - Nikolay Yakovlevich
Sonin, Russian mathematician (d 1915)
- 1857 - Robert
Baden-Powell, 1st Baron Baden-Powell, English founder of the
Boy Scouts (d. 1941)
(also of his wife - see 1889)
- 1857 - Heinrich Hertz, German physicist (d.
1894)
- 1878 - Walter Ritz, Swiss
physicist (d. 1909)
- 1880 - Frigyes Riesz,
Hungarian mathematician (d. 1956)
- 1883 - Marguerite
Clark, American silent film actress (d. 1940)
- 1886 - Hugo Ball, German author
and poet (d. 1927)
- 1887 - Ksawery
Tartakower, Polish chess player (d. 1956)
- 1889 - Lady
Olave Baden-Powell, English
Chief Girl Guide (d. 1977) (also of her husband - see 1857)
- 1892 - Edna St. Vincent Millay,
American writer (d. 1950)
- 1896 - Enid Markey,
silent screen actress (d. 1981)
- 1899 - Dwight Frye,
American actor (d. 1943)
- 1899 - George O'Hara, American actor (d.
1966)
- 1899 - Dechko Uzunov, Bulgarian painter (d.
1986)
- 1900 - Luis
Buñuel, Spanish-born film director (d. 1983)
- 1902 - Fritz
Strassmann, German physicist (d. 1980)
- 1903 - Morley
Callaghan, Canadian writer (d. 1990)
- 1907 - Sheldon
Leonard, American actor, writer, director, and producer (d.
1997)
- 1907 - Robert Young, American actor
(d. 1998)
- 1908 - Sir
John
Mills, English actor (d. 2005)
- 1914 - Renato
Dulbecco, Italian-born virologist, recipient of the
Nobel Prize in
Physiology or Medicine
- 1918 - Sid Abel, Canadian hockey
player (d. 2000)
- 1918 - Charlie Finley, American sports
entrepreneur (d. 1996)
- 1918 - Don
Pardo, American radio and television announcer
- 1918 - Robert Wadlow, tallest person in
history (d. 1940)
- 1921 - Jean-Bédel Bokassa,
ruler of the Central African Republic (d. 1996)
- 1921 - Wayne Booth, American literary critic
(d. 2005)
- 1921 - Giuletta
Masina, Italian actress (d. 1994)
- 1922 - Steven Hill,
American actor
- 1925 - Edward Gorey,
American illustrator (d. 2000)
- 1926 - Kenneth
Williams, English actor (d. 1988)
- 1926 - Bud
Yorkin, American film director
- 1927 - Guy Mitchell,
American singer
- 1928 - Paul Dooley,
American actor
- 1928 - Bruce Forsyth, British
entertainer
- 1929 - Rebecca
Schull, American actress
- 1930 - Marni Nixon,
American singer
- 1932 - Ted Kennedy, U.S.
Senator from Massachusetts
- 1934 - Sparky
Anderson, baseball manager
- 1936 - J. Michael
Bishop, American scientist, recipient of the Nobel Prize in
Physiology or Medicine
- 1938 - Ishmael Reed,
American writer
- 1941 - Hipólito
Mejía, President of the
Dominican Republic
- 1944 - Jonathan
Demme, American director
- 1944 - Robert Kardashian, American
lawyer
- 1944 - Tom
Okker, Dutch tennis player
- 1945 - Leslie
Charleson, American actress
- 1949 - Niki Lauda, Austrian
race car driver
- 1949 - Olga Morozova, Russian tennis
player
- 1950 - Julius Erving,
American basketball player
- 1950 - Ellen Greene, American actress
- 1950 - Miou-Miou, French actress
- 1950 - Julie Walters, English actress
- 1950 - Lenny
Kuhr, Dutch singer and Eurovision Song
Contest winner
- 1952 - Bill Frist, American
politician
- 1953 - William
Petersen, American actor
- 1959 - Kyle
MacLachlan, American actor
- 1962 - Steve Irwin,
Australian herpetologist and televison personality
- 1963 - Vijay Singh, Fiji
golfer
- 1966 - Rachel Dratch,
American actress and comedienne
- 1966 - Brian Greig, Australian politician
- 1967 - Alf Poier, Austrian
comedian
- 1968 - Jeri Ryan, American
actress
- 1969 - Byron Stroud,
American bassist (Fear Factory)
- 1971 - Lea Salonga,
Filipina actress and singer
- 1972 - Claudia
Pechstein, German speed skater
- 1972 - Michael Chang, American tennis
player
- 1975 - Drew
Barrymore, American actress
- 1975 - Chris Moyles,
British DJ
- 1976 - Guðmundur Loftur Olason Icelandic
Viking
- 1979 - Brett Emerton,
Australian footballer
- 1982 - Jenna Haze, American
actress
Deaths
- 965 - Odo,
Duke of Burgundy
- 1071 - Arnulf III, Count of
Flanders (killed in battle)
- 1111 - Roger Borsa, King of
Sicily
- 1371 - King
David II of Scotland (b.
1324)
- 1512 - Amerigo Vespucci,
Italian merchant and explorer (b. 1454)
- 1627 - Olivier van
Noort, Dutch navigator (b. 1558)
- 1674 - Jean
Chapelain, French writer (b. 1595)
- 1680 - Catherine Monvoisin, French
sorceress
- 1690 - Charles Le
Brun, French artist (b. 1619)
- 1727 - Francesco Gasparini, Italian
composer (b. 1661)
- 1731 - Frederik
Ruysch, Dutch physician and anatomist (b. 1638)
- 1732 - Francis
Atterbury, English bishop and man of letters (b. 1663)
- 1742 - Charles
Rivington, English publisher (b. 1688)
- 1797 -
Karl Friedrich Hieronymus Freiherr von Münchhausen, German
officer and adventurer (b. 1720)
- 1816 - Adam Ferguson,
Scottish philosopher and historian (b. 1723)
- 1875 - Jean-Baptiste Camille
Corot, French painter (b. 1796)
- 1875 - Sir Charles Lyell, Scottish geologist (b.
1797)
- 1890 - John
Jacob Astor III, American businessman (b. 1822)
- 1890 - Carl Heinrich Bloch, Danish
painter (b. 1834)
- 1892 - Herman
Koeckemann, German Catholic prelate (b. 1828)
- 1901 - George Francis
FitzGerald, Irish mathematician (b. 1851)
- 1903 - Hugo Wolf, Austrian
composer (b. 1860)
- 1939 - Antonio
Machado, Spanish poet (b. 1875)
- 1943 - Hans Scholl, German
resistance fighter (b. 1918)
- 1943 - Sophie Scholl, German resistance
fighter (b. 1921)
- 1945 - Osip Brik, Russian
writer (d. 1888)
- 1961 - Nick LaRocca,
American jazz musician (b. 1889)
- 1965 - Felix
Frankfurter, Justice of the U.S. Supreme Court (b. 1882)
- 1968 - Peter Arno, American
cartoonist (b. 1904)
- 1976 - Angela
Baddeley, English actress (b. 1904)
- 1976 - Florence Ballard, American singer
(The
Supremes) (b. 1943)
- 1980 - Oskar
Kokoschka, Austrian artist (b. 1886)
- 1983 - Sir
Adrian
Boult, English conductor (b. 1889)
- 1984 - Jessamyn West, American
writer (b. 1902)
- 1985 - Alexander
Scourby, American actor (b. 1913)
- 1985 - Efrem Zimbalist, Russian violinist
(b. 1889)
- 1987 - Andy Warhol,
American artist, director, and writer (b. 1928)
- 1994 - Papa John
Creech, American musician
- 1995 - Ed Flanders,
American actor (b. 1934)
- 1997 - Joseph Aiuppa,
American gangster (b. 1907)
- 1998 - Abraham
Ribicoff, American politician (b. 1910)
- 2000 - Fernando
Buesa, Spanish politician (b. 1946)
- 2002 - Chuck Jones,
American animator (b. 1912)
- 2002 - Jonas Savimbi, Angolan rebel leader
(b. 1934)
- 2004 - Roque
Máspoli, Uruguayan footballer (b. 1917)
- 2004 - Andy Seminick, baseball player (b.
1920)
- 2005 - Zdzisław
Beksiński, Polish artist (b. 1929)
- 2005 - Simone Simon, French actress (b.
1910)
Holidays and observances
Later
Gummi_O
»
18.02.2006 16:02:00 / Gummi_O
Ég vaknaði snemma í morgun og fór út að ná
í Tulsa world blaðið út í garð, Þið vitið svona eins og í
bíómyndunum, maður í baðsloppnum sínum labbar út í garð tekur
upp blaðið og veifar til nágrannana. fyrir utan að baðsloppur
var ekki nóg og það voru engir nágrannar úti því það er
fríking 10 stiga frost og snjór yfir öllu, það er ekki
skrítið að fólk verði veikt hérna því það var 22 stiga hiti
hérna í fyrradag en svona er víst veðrið í Oklahoma
steikjandi hiti einn daginn og svo frost þann
næsta.
Ég var að horfa á curling á vetrar ólympíuleikunum á Ítalíu áðan
og síðan hvenar er curling íþrótt ???
Ef curling er íþrótt þá er Fallbeyging íþrótt og ég ætti að vera
staddur í Tóríno, ef Curling er íþrótt þá er bjórdrykkja íþrótt og
ég væri öruggur með sæti í landsliðinu, ef Curling er íþrótt þá eru
engin takmörk fyrir því sem hægt er að kalla íþrótt því curling er
ekki íþrótt, curling er ekki íþrótt, curling er ekki íþrótt.
Ég hef aldrei séð neitt eins heimskulegt og hommalegt eins og
menn í Cruling fyrir utan kannski menn að dansa á skautum.
Hvenar ætla Íslendingar að byrja að vinna eitthvað á vetrar
ólympíuleikunum?? þegar ég segi fólki hérna að íslendingar eigi
bara nokkrar hræður á leikunum skilur fólk ekki hvernig það getur
verið að ÍS land sé ekki betra en þetta í vetraríþróttum og það sem
þeir skilja síst af öllu er að við séum ekki með með þeim bestu í
hokky.
Ég útskýri bara fyrir þeim að við séum gáfaðari en að fara út að
leika okkur þegar það er skít kallt úti við förum frekar á barinn
og fáum okkur að drekka til að hlýja okkur, heldur en að fara velta
okkur um í snjó eða ís og vera skít kallt.
ÞAð er annars ekkert varið í Vetrarólympíuleikana hvort sem er,
en það er bara ekkert annað í sjónvarpinu á morgnanna og ég er ekki
svo vitlaus að fara út að leika í þessum skíta kulda sem er úti svo
ég ætla að fara aftur að horfa á curling.
Later
Gummi_O
»
16.02.2006 01:09:46 / Gummi_O
Bætti nokkrum myndum af stelpunum hér til vinstri.
Það fyrsta sem Júlía gerir þegar hún kemur heim úr skólanum á
hverjum degi er að skipta um föt og þá á ég við að hún fer
í prinsessu föt, hún fer alltaf í kjól og setur á sig
prinsessu kórónuna eða stundum nægir bara kórónan.
Gummi_O
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|